Upplyfting: 15-25 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Samvinnuleikir, Traustæfingar
Hvað þarf:
Slétt, opið svæði sem ekki er hægt að renna á. A.m.k. 10 manns, 15-25 mín.
Hvað á að gera:
Hvað á að gera: Sá sem á að lyft stendur innan um félaganna og þegar allir eru tilbúnir þá lyfta félagarnir viðkomandi upp. Athugið að láta jafnmarga standa sitthvorum megin við þann sem er lyft. Í lyftunni er best að taka undir bak og höfuð fyrst og lyfta svo rest af búk og fótum. Sá sem er lyft á að vera stífur sem spýtukarl og með handleggi krosslagða yfir bringu þar til yfir lýkur, meiri upplifun ef augu er lokuð.
Þegar búið er lyfta upp þátttakanda á að rugga honum rólega fram og tilbaka nokkrum sinnum og færa þann sem liggur rólega til jarða og rugga eins lengi og mögulegt er. Munið að beygja hné og bíðið með að standa upp þar til að sá sem liggur hefur risið upp, svolítið ógnandi að liggja á jörðinni og líta upp á fullt af glottandi andlitum.
Leyfið þátttakendum að greina frá hverju þau upplifðu, alltaf eitthvað gott sem kemur í ljós og það eru mikil verðmæti fyrir hópinn í að auka traust, væntumþykju og samvinnu.
Annað:
Stutt lýsing
Slétt, opið svæði sem ekki er hægt að renna á. A.m.k. 10 manns, 15-25 mín.
Leikur sem stendur fyrir sínu eða frábær viðbót við Þytur í laufi. Ef tími gefst má taka þennan leik á eftir Þytur í laufi.
Þátttakanda er lyft af jörðinni og lagður í lárétta stöðu af félögum sínum í ca. axlarhæð og ruggað rólega niður á jörðina aftur.








