Sögin og öxin

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Heimurinn og umhverfið, Skapandi hugur, Tilveran mín, Samfélagið, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking

Sögin og öxin

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Sögin og öxin“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Hvernig nota skal sög og öxi án þess að slasa sjálft þig eða önnur

• Vita hvernig á að ganga frá verkfærunum svo auðvelt sé að flytja þau án þess að þau skemmist eða skemmi aðra hluti

• Þekkja mismunandi hluta sagar og axar

• Vita hvernig á að geyma verkfærin þegar þau eru ekki í notkun (t.d. yfir nótt í útilegu eða þegar þau eru sett í geymslu)

• Kunna að br!na öxi og skipta um blað í sög

• Kunna að nota öxi til að höggva til greinar eða trjádrumba og búa til eitthvað nytsamlegt úr þeim

Lýsing:


Sög og öxi eru öflug, fjölnota verkfæri sem geta einnig verið hættuleg sé óvarlega farið. Til að öðlast færnimerkið “sögin og öxin” þarf að leysa ákveðin verkefni sem ætlað er að auka þekkingu og skilning skátans á því hvernig meðhöndla skal þau á öruggan hátt. Verkefnin eru bæði verklegar æfingar og samræður um það hvað beri að hafa í huga hverju sinni. Best er ef verkefnin séu sem líkust raunverulegum aðstæðum svo ljóst sé hvenær sé við hæfi að beita verkfærunum og þá hvernig. t.d. með því að höggva eldivið til að gera varðeld eða að fella minni tré við grysjun.