Klifur

Aldursbil :

Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Náttúran, Áskoranir, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking

Klifur

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Klifur“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Þekkja og kunna á öryggisbúnað sem er notaður í klifri

• Þekkja helstu hnúta sem notaðir eru í klifri

• Huga að neyðarsíma og gera viðeigandi viðbragðsáætlanir ef klifrað er í náttúrunni

• Geta komið fyrir toppfestri línu með öruggum hætti í klifurvegg og úti í náttúrunni

• Hafa klifrað að lágmarki 5 sinnum upp vegg með toppfestingu

• Hafa sigið að lágmarki 5 sinnum niður vegg með toppfestingu

• Þekkja hvar er hægt að fá upplýsingar um helstu klifursvæði (klifur.is)

• Skilja mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna og þekkja almannarétt í náttúru Íslands

• Vera búin með færnimerkið Hjálpa og geta nýtt þá færni í aðstæðum með tilliti til meiðsla tengt klifri t.d. bruna frá reipi/köðlum, falls, tognunum og brota.

Lýsing:


Að klifra í klifurvegg eða úti í náttúrunni er ótrúlega frelsandi. Þú stefnir sífellt hærra og hærra þar til toppnum er náð! En klifur krefst líka mikils undirbúnings og öryggis sem þarf að kynna sér vel áður en haldið er á hamarinn!