Hljóðfæri
Aldursbil :
Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Tilveran mín, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Lausnaleit, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Hljóðfæri” þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Læra að spila lag á hljóðfæri
• Geta lesið einfaldar nótur
• Læra tækniæfingar sem henta hljóðfærinu þínu
• Vita hvernig hljóðfærið þitt virkar og hvernig á að sjá um það
• Spila 2 skátalög eftir nótum
Lýsing:
Að spila á hljóðfæri er skemmtilegt, líkamleg áskorun og getur líka verið leið til að virkja ímyndunaraflið og tjá tilfinningar. Hægt er að aðlaga færnimerkið að þeim hljóðfærum sem þú hefur aðgang að og þeirri kennslu sem er í boði.








