Ljósmyndun

Aldursbil :

Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Lausnaleit, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Áskoranir, Eigin gildi

Ljósmyndun

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Ljósmyndun þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Þú þarft að skilja hvenær er viðeigandi að taka mynd og hvenær ekki

• Þú þarft að skilja þann rétt sem þú hefur varðandi myndir sem eru teknar af þér

• Prófaðu mismunandi gerðir myndavéla og reyndu að þekkja muninn

• Lærðu á stillingar á myndavél t.d. ISO, lokahraði og ljósop og hvaða áhrif þær hafa á myndina

• Prófaðu að taka myndir í mismunandi birtu og berðu saman niðurstöðurnar

• Flokkurinn segir sögu eingöngu með ljósmyndum

Lýsing:


Mynd er minning en einnig endursögn af reynslu í daglegu lífi okkar. Það eru margar mismunandi gerðir af myndavélum sem henta við mismunandi tilefni. Hver er munurinn á myndavélinni í símanum og þeirri sem hangir um háls ferðamanna? Í færnimerkinu ljósmyndun færðu að rannsaka mismunandi gerðir myndavéla og öðlast skilning á því hvernig stillingar á myndavél hafa áhrif á lokaútgáfu myndarinnar.