Kaffitími

Aldursbil :

Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Skapandi hugur

Kaffitími

Kröfur :


Veljið að minnsta kosti þrennt af listanum:

• Skipuleggið kaffboð með 7 mismunandi smákökutegundum.

• Bjóðið vinaflokki í breskt teboð og bakið skonsur fyrir það.

• Skipuleggið matarboð með kökuhlaðborði.

• Haldið kökukeppni með ákveðnu þema. Besta kakan vinnur!

• Blandið saman tveimur bakkelsistegundum og búið til glæn!tt bakkelsi. Til dæmis: laufabrauð + kleina = laufkleina.

• Veljið eitt eða fleiri lönd og prófið að baka hefðbundið bakkelsi frá þeim löndum.

• Haldið góðgerðakaffihús og látið hagnaðinn renna til einhvers góðs málefnis.

• Lagið kaffi eða kakó yfir opnum eldi.

• Haldið kaffitímann utandyra og notið prímus og önnur útieldunartæki við undirbúninginn.

• Farið í lautarferð.

• Haldið baksturskeppni þar sem þið þurfið að þróa eigin uppskriftir að bakkelsi.

• Verkefni að eigin vali tengt kaffi og kökum

Lýsing:


Það er gaman að bjóða vinum sínum í kaffi. Þegar þú vinnur að þessu merki lærirðu að baka alls konar bakkelsi og færð tækifæri til að halda gott kaffiboð