Ofurhetja
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Hópurinn, Lausnaleit, Gagnrýnin hugsun, Samfélagið, Eigin gildi

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Ofurhetja þarftu að þekkja til og geta s!nt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Velja þér málefni sem þú vilt hafa áhrif á, t.d. loftslagsmál, einelti, umferðaröryggi, heilsu eða flokkun sorps.
• Ákveða hvernig þú vilt leggja þitt af mörkum, t.d. með því að minnka kjötneyslu, vera vinur allra í bekknum, hjóla daglega í skólann eða tína upp rusl.
• Settu þér markmið um að gera þetta í heila önn.
• Taktu reglulega stöðumat og hjálpaðu öðrum í flokknum að ná sínum markmiðum.
• Í lok annarinnar skaltu meta hvernig til tókst, hvaða áhrif þitt framlag hafði og hvað þetta skildi eftir í þínum eigin reynslubanka.
Lýsing:
Hvernig höfum við áhrif, á stórum eða smáum skala? Finndu málefni sem þú brennur fyrir og athugaðu hvernig þú getur lagt þitt af mörkum. Ein getum við gert margt en í samvinnu við önnur getum við flutt fjöll! Ofurhetjur hætta aldrei að berjast fyrir því sem þau brenna fyrir og trúa á, ekki frekar en skátar








