Úti á vatni

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Heimurinn og umhverfið, Skapandi hugur, Tilveran mín, Hópurinn, Lausnaleit, Náttúran, Áskoranir, Líkaminn

Úti á vatni

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Úti á vatni“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Taka þátt í ferð þar sem gist er minnst eina nótt úti á vatni, fleka eða eyju. Það fer eftir því hvert og hvenær farið er, hvað í því felst. Það er t.d. hægt að ganga, hjóla, klifra, sigla, róa, skíða eða skauta.

• Taka virkan þátt í undirbúningi, t.d. setja saman útbúnaðarlista, velja leið, ferðamáta, gististað og matseðil.

• Endurmetið hvernig til tókst með öllum hópnum

Lýsing:


Ein af áskorunum skátastarfs er að ferðast og upplifa ævintýri. Með því að vinna að þessu færnimerki færðu tækifæri til að ferðast, taka þátt í undirbúning og meta hvernig gekk.