Sjálfbjarga

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Lausnaleit, Náttúran, Líkaminn

Sjálfbjarga

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Sjálfbjarga” þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Kynna þér og læra helstu grunnþarfir manna varðandi vatn, mat og hita

• Vita hvað þú þarft að gera til að geta lifað af neyð í 72 tíma

• Vita hvernig á að finna áttir og rata án korts og áttavita

• Búa til öruggan næturstað úti í náttúrunni og eyða einni nóttu þar

• Vita hvað í náttúrunni er óhætt að leggja sér til munns og á hvaða árstíma mismunandi fæðu er að finna t.d. ber, fisk, sveppi eða plöntur

Lýsing:


Stundum fara hlutirnir öðruvísi en lagt var upp með í upphafi. Kannski gleymdist matarkassinn, rafmagnið fer eða allur eldiviðurinn rennblotnaði á leið í skálann. Þá er mikilvægt að vita hvernig við getum nýtt okkur það sem við finnum í umhverfinu. Við þurfum að vera meðvituð um hverjar grunnþarfir mannsins eru og hvernig hægt er að uppfylla þær við erfiðar aðstæður, bæði heima og úti í náttúrunni.