Binda
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Tilveran mín, Lausnaleit, Hugurinn, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Binda þarftu að kunna og geta sýnt flokknum þínum og foringja að þú þekkir og kunnir skil á því sem færnimerkið Hnýta krefst af þér, ásamt því að kunna skil á eftirfarandi:
• Geta hnýtt fimm ólíka hnúta, notað þá til að leysa alvöru verkefni og vita við hvaða tilefni hvaða hnútur hentar best.
• Þekkja ólíkar tegundir af snæri og reipi og vita við hvaða tilefni er gott að nota hvaða tegund.
• Kunna að búa til talíu og nota hana til að lyfta, draga eða spenna eitthvað upp.








