Skapa
Aldursbil :
Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Tilveran mín, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Áskoranir, Eigin gildi, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Skapa þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Búa til þrjá ólíka hluti úr þrenns konar efnivið á þrjá ólíka vegu t.d. sveitareinkenni, fuglahús, armband, matarpoki, hnífahulstur, úrklippubók o.s.frv.
• Þú þarft sjálf(t)/ur að ákveða hvernig hlutirnir eiga að líta út og hvernig á að búa þá til.
Lýsing:
Það er alltaf skemmtilegt að búa eitthvað til í höndunum og það getur verið skemmtileg áskorun. Það getur líka verið frábær leið til að gleyma stað og stund.








