Trönubyggingar

Aldursbil :

Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Lausnaleit, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Áskoranir

Trönubyggingar

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Trönubyggingar þarftu að hafa lokið færnimerkinu Byggja og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Þekkja og skilja hvað þarf til að byggingin og framkvæmdin sé örugg og trygg.

• Prófa að setja saman fimm mismunandi trönubyggingar sem hafa mismunandi notagildi, t.d. hlið inn í tjaldbúð, fleka eða eldhúsaðstöðu.

• Leiða byggingu trönubyggingar út frá þinni eigin hönnun.

• Meta trönubyggingar og notagildi þeirra eftir að þær hafa verið reistar.

Lýsing:


Á skátamótum rísa oft flóknar og tilkomumiklar trönubyggingar. Hvernig ætli þær séu búnar til? Það eru til margar leiðir til að reisa tilkomumiklar trönubyggingar og um leið ögra sér og flokknum. Láttu hugmyndaflugið reika og byggðu það sem þér dettur í hug, t.d. sturtu fyrir tjaldbúðina, hæsta turninn í tjaldbúðinni eða hringekju fyrir yngstu skátana. Hannaðu þína eigin trönubyggingu eða fáðu hugmyndir frá öðrum.