Árstíðir
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Hópurinn, Gagnrýnin hugsun, Lausnaleit, Náttúran, Áskoranir, Líkaminn

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Árstíðir“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Gista a.m.k. eina nótt úti í hverjum mánuði í heilt ár. (Þurfa ekki að vera tólf mánuðir í röð)
• Gera eitthvað sem tengist viðkomandi árstíð í hverri ferð, s.s. leika í snjónum, sparka haustlaufum og taka mynd af því
• Halda dagbók þar sem kemur fram hvernig er að gista úti í ólíkum árstíðum. Kynna fyrir öðrum skátum hvað lærðist af því að takast á við náttúruöflin allt árið um kring og góð ráð til að upplifa hverja árstíð í gegnum náttúruöflin
Lýsing:
Veðrið getur verið ansi breytilegt á Íslandi. Í skátastarfi er útivist mikilvægur hluti af starfinu. Þetta færnimerki hvetur þig til að fara út og gista úti allt árið um kring. Undirbúðu þig vel og farðu út með skátavinum þínum.








