Köfun
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Náttúran, Áskoranir, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Köfun“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Vita hvernig á að velja, stilla og nota helsta búnað s.s. björgunarvesti, snorkel (köfunargrímu) og sundfit
• Vera búin með færnimerkið Bjarga og geta nýtt þá færni í aðstæðum með tilliti til slysa tengt köfun t.d. meðhöndla súrefnisskort, ofkæling, skurði og fleira.
• Kunna að bjarga manneskju úr vatni og geta framkvæmt endurlífgun
• Snorkl- og köfunartækni, þar með talið stjórn á floti, yfirborðssundi og hreinsun vatns úr snorklinum þínum.
• Klára snorklferð á yfirborðinu með styttri heimsóknum niður á 2 m dýpi
• Ef mögulegt er, farðu í æfingarköfun undir eftirliti köfunarstjóra og “andaðu” neðansjávar/sundlaug
• Geta synt 200m og troðið marvaða í 5 mín í sundlaug
Lýsing:
Heimurinn undir yfirborðinu veitir alveg n!ja upplifun af vatni. Merkið er hannað með köfun í huga en hægt er að aðlaga það ef ekki er möguleiki á æfingaköfun. Fyrir æfingaköfun þarf alltaf að ráða löggiltan köfunarkennara.








