Leysa

Aldursbil :

Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Leiðtogafærni, Hugurinn, Lausnaleit, Ímyndunarafl og listræn tjáning,

Leysa

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Leysa þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Læra á eða búa til tvær mismunandi tegundir af dulmáli eða “leynitungumáli”.

• Leysa skilaboð frá öðrum.

• Búa til þín eigin skilaboð með dulmáli.

• Leysa verkefni og þrautir sem byggja á fjölbreyttum grunni eins og t.d. krossgátur, myndagátur, fjársjóðsleit eða sudoku. 

Lýsing:


Að reyna að leysa gátur, dulmál eða þrautir er skemmtileg áskorun fyrir flest en það er ekki síður gaman að geta haft samskipti við önnur án þess að utanaðkomandi viti hvað þið eruð að segja, skrifa eða teikna.