Tónlist
Aldursbil :
Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Samskipti, Ímyndunarafl og listræn tjáning,, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Tónlist” þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Prófa mismunandi leiðir til að skapa tónlist, t.d. með því að syngja mismunandi raddir, keðjusöng, spila á hljóðfæri eða annað
• Ræða mismunandi tónlistarsmekk skátasveitarinnar og hlusta á fjölbreytta tónlist
• Hlusta á tónlist sem kallar fram mismunandi tilfinningar, sorglega, glaðværa o.s.fv.
• Semja n!jan texta við lag og syngja og spila það saman í sveitinni, eða semja lagið líka.
Lýsing:
Að spila, hlusta á eða búa til tónlist saman er frábært hópefli og eitthvað sem öll ættu að prófa.








