Umhirða
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Lausnaleit, Náttúran, Eigin gildi

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Umhirða” þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Hvernig á að sjá um persónulegan búnað eins og gönguskó, bakpoka og svefnpoka svo hann virki vel og lengi
• Gera við búnaðinn þinn, t.d. sauma ól á bakpokann, pússa skó eða laga tjaldd!nu
• Þekkja búnað skátafélagsins og hvernig hann virkar
• Hjálpa til við umsjón búnaðar sem þú notar í félaginu þínu t.d. axir, tjöld, segl, kanó, björgunarvesti, potta og þess háttar
• Vita hvernig á að geyma og flytja mismunandi gerðir af búnaði í gönguferðum, gistinóttum og skálum.
Lýsing:
Ef við hugsum vel um búnaðinn okkar þá endist hann mun lengur og virkar betur. Í færnimerkinu „Umhirða“ lærir þú að hugsa vel um búnaðinn þinn og félagsins og hvernig á að gera við. Búnaður sem endist lengi er sjálfbær til góðs fyrir sjálft þig, skátana og jörðina.








