Alþjóðaskátun: áskorun
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Heimurinn og umhverfið, Heimurinn, Samfélagið

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Alþjóðaskátun: áskorun“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Flokkurinn þarf að hafa samband við skátaflokka frá að minnsta kosti tveimur löndum og kynnastþeim.
• Búið til áskorun og skorið á vinaflokkinn ykkar að klára hana. Þið ákveðið hver áskorunin er. Dæmi: Hver getur súrrað hæsta turninn eða tjaldað hraðast.
• Biðjið vinaflokkinn ykkar að gera áskorun fyrir ykkur.
Lýsing:
Skátahreyfingin er alþjóðleg hreyfing og það eru skátar í yfir 160 löndum. Mikilvægur þáttur í skátastarfi er að kynnast skátum frá öðrum löndum, þannig stuðlum við að friði í heiminum. Skátar í öllum löndum hafa gaman af alls konar áskorunum. Til þess að fá þetta merki þurfið þið að finna upp á einhverri áskorun og skora á að minnsta kosti einn skátaflokk frá öðru landi að klára áskorunina.








