Endurvinnsla

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Gagnrýnin hugsun, Lausnaleit, Náttúran, Heimurinn, Eigin gildi

Endurvinnsla

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Endurvinnsla“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Flokkurinn ræðir sína daglegu rafmagnsnotkun og setur sér markmið um að minnka hana. Eftir t.d. mánuð má skoða hvernig gekk að minnka notkunina.

• Kynntu þér um hve langan veg þarf að flytja matvæli áður en þau koma í matvörubúðina í nágrenni þínu og hvaða áhrif það hefur á hvaða mat þú velur að kaupa

• Kynntu þér hversu mikið af náttúruauðlindum t.d. rafmagn eða vatn, þarf til að framleiða tilteknar vörur t.d. mat, föt eða rafmagnstæki. Ræddu við flokkinn/sveitina þína um hvernig þið getið haft áhrif á það hvaða vörur þið notið

• Standa fyrir hreinsunarátaki (ásamt flokknum/ sveitinni) þar sem rusli er safnað saman og allt sem er n!tilegt er annaðhvort selt eða gefið til endurn!tingar

• Vita hvar í nágrenni þínu er hægt að kaupa notaða hluti og ræða við flokkinn/sveitina um hvað af því sem hægt er að kaupa sé við hæfi að nota aftur t.d. - föt, húsgögn, íþróttabúnað, tjöld, leikföng, mataráhöld og gleraugu

• Sjá um flokkun á heimilissorpi í 2 vikur - vigta og taka saman magn í hverjum sorpflokki.

• Ræða við flokkinn og fjölskylduna hvernig hægt er að minnka sorp og auka þann hlut sem fer í endurvinnslu

Lýsing:


Við eigum aðeins eina jörð og til þess að við sem hana byggjum getum notið hennar sem lengst er mikilvægt að við göngum vel um hana. Skátar taka virkan þátt í að reyna að vernda jörðina og viðhalda henni og það er best gert með því að vita hvernig við höfum áhrif á hana og hvað við getum gert til að minnka skaðleg áhrif okkar