Lífsskoðun

Aldursbil :

Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Tilveran mín, Eigin gildi, Tilveran, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking

Lífsskoðun

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Lífsskoðun” þarftu að þekkja til og geta rætt eftirfarandi atriði í flokknum þínum. Taktu þér góðan tíma í verkefnið og ígrundaðu vandlega hvers þú hefur orðið vísari.

Veltu fyrir þér eftirfarandi spurningum:

• Hvaðan komum við?

• Hvað er rétt og rangt?

• Hvað gefur lífinu tilgang?

• Á hvað trúir þú?

• Hvað í þinni trú/lífsskoðun færir þér hamingju?

• Er eitthvað sem hindrar þig í að hafa þessa trú/ lífsskoðun?

• Hvað er gott í þinni trú/lífsskoðun?

• Er til guð/ir?

• Hefur trú/lífsskoðun þín e.t.v. haft áhrif á skátastarf þitt? Á hvaða hátt?

• Veltu fyrir þér tvemur af fjórum eftirfarandi áskorunum:

• Veltu fyrir þér plánetiunni Jörð, alheiminum og hvernig allt varð til.

• Finndu textabrot, ljóð, lag eða atriði í kvikmynd eða sjónvarpsþætti sem þér finnst l!sa vel þinni lífsskoðun og hvernig þú vilt haga þínu lífi. Deildu því með öðrum í flokknum/sveitinni þinni og ræðið og rökstyðjið valið.

• Talaðu við einhvern af annarri kynslóð (foreldrar eða afar/ömmur) hvernig lífið var þegar þau voru á þínum aldri. Á hvað trúðu þau? Hefur eitthvað breyst síðan þá?

• Athugaðu hversu marga þú þekkir sem aðhyllast aðra trú/lífsskoðun en þú, vinir, skólafélagar, nágrannar o.s.frv. Taktu viðtöl við einhverja tvo þeirra sem eru virkir í sinni trú/lífsskoðun og leggðu fyrir þau spurningarnar að ofan.

• Kynntu niðurstöðurnar fyrir flokknum/sveitinni þinni.

Lýsing:


Kjarni merkisins er að læra að ígrunda stóru spurningarnar í lífinu, kynnast ólíkum sjónarhornum og móta sína eigin lífsskoðun – með virðingu fyrir öðrum og þeim fjölbreytileika sem gerir heiminn ríkari. Lífsskoðun getur byggst á trú (t.d. kristni, búddisma, íslam) eða á veraldlegum hugmyndum (t.d. húmanisma, heimspeki eða einfaldlega eigin gildum). Hún er í raun leiðarvísir sem hjálpar okkur að skilja heiminn og ákvarða hvernig við viljum lifa lífinu. Hver og einn má hafa sínar eigin hugmyndir. Það eru engin rétt eða röng svör, heldur að læra að setja orð á lífsskoðun sína og bera virðingu fyrir því sem aðrir hugsa. Lífsskoðun er það hvernig einstaklingur lítur á lífið, tilveruna og hvað er mikilvægt.