Vaka
Aldursbil :
Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Samskipti, Gagnrýnin hugsun, Náttúran, Líkaminn, Eigin gildi, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Vaka“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Vaka í 24 klukkutíma með flokknum þínum
• Á u.þ.b. tveggja tíma fresti yfir sólarhringinn vinnur flokkurinn að ákveðnum verkefnum sem reyna á líkamlega og andlega færni og færni í samskiptum
• Eftir hvert verkefni tekur flokkurinn stutt endurmat þar sem rætt er:
• Hvernig gekk? hefði gengið betur ef hópurinn væri úthvíldur, hver væri munurinn?
• Hvernig öllum líður, bæði andlega og líkamlega
• Eftir að 24 tímarnir eru liðnir takið endurmat þar sem rætt er
• Er það þess virði að vera vakandi í 24 tíma? af hverju? af hverju ekki?
• Hvernig líður fólki eftir sólarhringinn? eitthvað athyglisvert sem flokkurinn tók eftir
• Tók flokkurinn eftir einhverjum samskiptaerfiðleikum yfir tímann?
Góð ráð:
Skemmtilegt væri að nýta pödduleikinn/klemmuleikinn um nóttina, þá er hægt að sjá hver er með pödduna í hvert skipti sem dagskrárliður hefst.
Að taka persónulegt endurmat er mjög sniðugt eftir svona upplifanir, að ákveða sjálft hvað þér finnst um að vaka óháð skoðunum flokksins.
Lýsing:
Það er fjör að vaka lengi með skátavinunum. Getur þú vakið heilan sólarhring með þeim? Ef það tekst, hvaða breytingar hefur það á líkama og hug?








