Mitt eigið merki
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Samskipti, Lausnaleit, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Mitt eigið merki“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Finndu hugmynd sem þér líst vel á og láttu foringja þinn vita hver hugmyndin er
• Nýttu hugmyndafræði PGM (plana-gera-meta)
• Settu fram skipulag, markmið og hvernig þú ætlar að meta
• Framkvæmdu verkefnið
• Taktu endurmat á verkefninu
• Kynntu verkefnið fyrir flokknum og foringja
Lýsing:
Í skátunum er opin vegur fyrir flest öll áhugamál. Þetta merki einblínir á þín áhugamál og hvað þú vilt gera í skátastarfi. Einfaldlega er þetta merki það sem þig langar að það sé. Veldu hvað þig langar að gera og gerðu það. Prófaðu nýja áskorun eða ævintýri sem þig langar að gera en hefur ekki fengið tækifæri til. Engin merki þurfa að vera eins, þetta merki gefur þér tækifæri til að s!na að þú framkvæmir þínar eigin hugmyndir frá upphafi til enda. Þetta merki getur verið annað hvort einstaklings eða hóps verkefni.








