Netlaus
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Samskipti, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Samfélagið, Tilveran, Eigin gildi, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Netlaus“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Vertu netlaus samfleytt í 48 tíma í þínu daglega lífi innanbæjar, í skóla, í skátastarfi, í miðri viku. Einungis hafa síma eða önnur tæki í öryggisskyni
• Í upphafi skrifar þú lista af hlutum sem þú myndir vanalega gera í nettengingu næstu 48 tímana
• Ræðið hvernig einstaklingar víðsvegar um heiminn takast á við netleysi
• Innan tímarammans reynir þú að gera eins mikið af þessum hlutum og þú getur án þess að n!ta nettengingu, t.d. senda póst, skoða veðurspá, skoða kort, leita upplýsinga og spila leiki
• Gefðu þér tíma í lok tímabilsins til að velta þessum hlutum fyrir þér og meta hvað var jákvætt og neikvætt
Lýsing:
Sífellt fleiri eru í stöðugt í farsímanum sinum eða tölvunni sinni. Tæknin getur gefið okkur mörg tækifæri en það getur verið gagnlegt að prófa að vera án nettengingar í ákveðin tíma. Þetta færnimerki hvetur þig til að skoða hvað þér finnst erfitt við að vera netlaus og skoða hvort það hafi verið einhver jákvæð breyting. Hvernig tekst fólk á við að vera netlaus á mismunandi stöðum í heiminum. Prófaðu að vera netlaus í 48 klukkustundir í þínu daglega lífi.








