Róður

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Náttúran, Líkaminn, Áskoranir

Róður

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Róður“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Að kunna öryggis- og umgengnisreglur þegar farið er á árabát, kajak og kanó, bæði úti á vatni og á landi.

• Þekkja eiginleika árabáta, kajaka og kanóa á vatni og hvernig skuli bregðast við ef bátnum hvolfir eða ef þú fellur útbyrðis.

• Þekkja hvaða búnað þú þarft við róður og kunna að nota búnaðinn.

• Sýna að þú hafir náð svo góðum tökum á róðri að þú getir örugglega siglt og st!rt árabát, kajak og kanó.

Lýsing:


Með róðri má auðveldlega kanna alls kyns vatnasvæði. Með því að vinna að færnimerkinu Róður munt þú læra á árabáta, kajak og kanó.