Námskeið í skyndihjálp
Aldursbil :
Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Heimurinn og umhverfið, Skapandi hugur, Tilveran mín, Leiðtogafærni, Lausnaleit, Samfélagið, Líkaminn, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Námskeið í skyndihjálp“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Hafa sótt skyndihjálparnámskeið sem haldið er af BÍS fyrir sveitarforingja eða annað sambærilegt námskeið (8 tíma).
• Námskeiðið skal miða að því að þátttakendur öðlist trausta þekkingu og verklega færni í skyndihjálp og endurlífgun.
• Að auki skal sérstök áhersla lögð á að efla öryggisvitund þátttakenda og stuðla að forvörnum við slysum í ólíkum aðstæðum.
• Á námskeiðinu er unnið með verklega kennslu þar sem þátttakendur fá að æfa raunverulegar aðstæður og bregðast hratt og rétt við bráðatilfellum.
Lýsing:
Samkvæmt reglum Bandalags íslenskra skáta skulu allir sveitarforingjar mæta á skyndihjálparnámskeið sem haldið er af BÍS eða annað sambærilegt námskeið.








