Samfélagsverkefni

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Heimurinn og umhverfið, Skapandi hugur, Tilveran mín, Hópurinn, Gagnrýnin hugsun, Samfélagið, Eigin gildi, Tilveran

Samfélagsverkefni

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Samfélagsverkefni þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Gera eitt eða fleiri verkefni sem hafa áhrif á aðra. t.d. standa fyrir fatasöfnun fyrir bágstadda, þrífa almenningssvæði í nærumhverfinu eða aðstoða við staðartengd verkefni (mála, leggja stíga, plokk, gróðursetja). Fjáröflun fyrir góðgerðarsamtök.

• Nota aðferðafræði Plana - Gera - Meta til að halda utan um verkefnið og meta hvort það hafi skilað raunverulegum áhrifum. Ásamt því að skoða hvað einstaklingurinn lærði sjálfur af þessu og hvort það hafi breytt lífss!n og gildum sínum.

Lýsing:


Skátar eru virkir þátttakendur í samfélaginu leitast við að bæta það með verkum sínum. Færnimerkið Samfélagsverkefni sn!st um að stíga út fyrir sjálfan sig og gera eitthvað sem hefur áhrif á aðra og samfélagið. Áherslan er á að axla ábyrgð sem hluti af heild og læra að einstaklingur getur haft jákvæð áhrif með því að gera góðverk sem skiptir máli fyrir aðra og stuðlar að jákvæðum breytingum. Að hafa áhrif á samfélagið sn!st ekki síður um að gera þig víðs!nni og breyta lífssýn þinni til frambúðar.