Veður
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Heimurinn og umhverfið, Skapandi hugur, Tilveran mín, Náttúran, Gagnrýnin hugsun, Áskoranir, Líkaminn

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Veður“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Sýna að þú kunnir að bregðast við hinum !msu veðurskilyrðum með því að haga klæðaburði, búnaði eða sjálfu verkefninu í samræmi við þau.
• Kunna skil á þeim uppl!singum um veður sem birtast í náttúrunni. Til dæmis þekkja óveðursk! í sjón og kunna að mæla vindátt.
• Prófa að gera tilraunir til að mæla vindhraða.
• Þekkja hin ólíku veðurskilyrði og hvernig þau hafa áhrif á líkamann og umhverfið. Þegar talað er um hin ólíku veðurskilyrði er t.d. verið að tala um kulda, hita, vind, úrkomustig, lægðir, hæðir, raka og eldingar. Einnig má velta fyrir sér hvort samgöngutruflanir og önnur náttúruvá getur haft áhrif.
• Þekkja hvaða þættir hafa áhrif á veðurskilyrði, hvaða uppl!singar má fá úr veðurfréttum og hvernig beri að túlka þær.
Lýsing:
Útivist er einn af meginþáttum skátaaðferðarinnar og því öllum skátum mikilvæg. Eitthvað sem getur haft gífurleg áhrif á reynslu okkar af útivist eru hin mismunandi veðurskilyrði. Flestir gá eingöngu til veðurs til að ákveða hvernig á að búast hverju sinni. En hversu mikið veist þú í raun um veðrið, og hvernig þú átt að undirbúa þig til að upplifun þín af útivistinni verði jákvæð við mismunandi veðurskilyrði, hvort sem það er ausandi rigning, snjóbylur eða glampandi sól?








