Þá og nú
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Gagnrýnin hugsun, Heimurinn, Áskoranir, Eigin gildi

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Þá og nú þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Þú þarft að þekkja hvernig og hvers vegna skátastarf hófst
• Hvað gerðu skátar í starfi sínu þá sem við gerum enn í dag?
• Hvernig hefur þróun samfélagsins mótað skátahreyfinguna?
• Kynntu þér WOSM, WAGGGS, BÍS og skátafélagið þitt
• Berðu saman skátalög og skátaheit þá og nú, t.d. 1907 og svo í dag.
• Af hverju heldur þú að þau hafi tekið breytingum?
• Hvernig heldur þú að þau muni líta út árið 2100?
• Berðu saman sögu skátafélagsins þíns og sögu annars skátafélags á Íslandi.
Lýsing:
Það er mikilvægt að þekkja sögu og þróun skátahreyfingarinnar til að skilja betur hugmyndafræðina á bak við skátastarf. Skátahreyfingin hófst fyrir meira en 100 árum síðan í Bretlandi og er í dag stærstu æskul!ðssamtök í heiminum.







