Raddsterk

Aldursbil :

Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Leiðtogafærni, Samskipti, Hópurinn, Lausnaleit, Gagnrýnin hugsun, Samfélagið, Eigin gildi

Raddsterk

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Raddsterk þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Geta útskýrt lýðræði, kosning, fulltrúalýðræði, beint lýðræði og skyldur/réttindi í samfélaginu.

• Láta rödd þína heyrast með því að taka þátt í lýðræðisleik eða kosningu.

• Búa til eitthvað sem sýnir öðrum hvað lýðræði er, t.d. leikrit, plakat eða gjörningur.

• Taka þátt í aðalfundi skátafélagsins þíns eða öðrum fundi í félaginu þar sem ákvarðanir eru teknar.

Lýsing:


Til að lýðræðið virki þá er mikilvægt að öll geti látið í sér heyra og að á þau sé hlustað. Það er einnig mikilvægt að skilja hvernig lýðræðislegar ákvarðanir eru teknar og hvernig þú getur haft áhrif á ákvarðanatökuna. Með því að vinna að færnimerkinu lærir þú hvernig lýðræðið virkar og hvernig þú getur látið þína rödd heyrast, tekið virkan þátt og haft áhrif.