Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Heimurinn og umhverfið, Náttúran

Logi

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Logi þarftu að þekkja til og geta sýnt skátafélögum þínum og foringja að þú þekkir og kunnir skil á því sem færnimerkið Neisti krefst af þér, ásamt því að kunna skil á eftirfarandi:

• Vita hvað þarf til að fá eld til að loga vel (súrefni, hiti, eldsneyti)

• Prófa hvað gerist þegar einhver af þessum þáttum er ekki til staðar.

• Vita hvernig á að útbúa mat yfir opnum eldi.

• Kunna að meðhöndla eld á öruggan hátt, þ.e. hvernig á að koma í veg fyrir að eldurinn geti dreift sér og vera viðbúið að slökkva hann.

Lýsing:


Logi er framhald af færnimerkinu Neisti. Þú getur orðið færari í handtökunum sem þarf að beita til að kveikja eld og hvernig á að umgangast hann á ábyrgan hátt, t.d. við eldamennsku, búa til stemningu eða til að hl!ja sér.