Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Gagnrýnin hugsun, Náttúran, Heimurinn

Vatn

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Vatn“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Læra um vatnsvinnslu og hvernig við hreinsum vatn

• Kanna neyslu vatns. Ígrundið hvernig við notum vatn, hvaðan vatnið kemur og hvernig við getum breytt vatnsneyslu okkar

• Ígrunda hvernig vatn hefur áhrif á mannkynið og aðrar lífverur

• Kanna hvernig vatnsaðgengi og notkun vatns er annars staðar í heiminum. Hver er munurinn á Íslandi, hvað reiðir fólk sig á annars staðar í heiminum og er möguleiki á að bæta þær aðstæður?

• Velja eitthvað viðfangsefni sem tengist vatni og kannið saman í flokknum eða sveitinni, t.d. dreifingu neysluvatns, umgengni um vatnsból, áhrif vatns á veðurfar og ofauðgun vatns. 

Lýsing:


Með því að vinna að færnimerkinu Vatn dýpkar skátinn skilning sinn á vatni og áhrifum þess en vatn er að finna alls staðar í kringum okkur. Skátinn öðlast skilning á því hvernig vatn hefur áhrif á líf fólks með ólíkum hætti og skoðar hvernig vatn er forsenda lífs á jörðu og hvers vegna aðgengi að vatni er mikilvægt.