Byggja
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Lausnaleit, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Byggja þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Geta skipulagt og byggt stóra trönubyggingu, t.d. þrautabraut, aparólu, hengirúm eða hlið.
• Fyrsti hluti verkefnisins er að hanna bygginguna, t.d. með því að teikna hana upp eða búa til líkan
• Næst skal skipuleggja hvernig framkvæma á verkið og hvaða verkfæri og efnivið þarf til
• Að byggingu lokinni er tilvalið að leyfa öðrum að prófa hvernig til tókst. Ekki gleyma að ganga vel frá
Lýsing:
Að byggja eitthvað stórt og nytsamlegt er skemmtileg áskorun. Það er frábær leið til að æfa sig í skipulagningu og til að finna n!jar og spennandi lausnir. Það er líka gaman að byggja eitthvað sem allur flokkurinn getur haft gaman af.








