Vertu úti

Aldursbil :

Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Náttúran, Áskoranir, Líkaminn, Tilveran, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking

Vertu úti

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Vertu úti“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Þú hafir sofa eina nótt aleitt/ein/einn úti í náttúrunni

• Skipuleggja hvar og hvenær þú ætlar að gista og hvernig þú kemur þér á staðinn

• Þú hafir kynnt þér eftirfarandi:

• Staðarreglur varðandi t.d. opinn eld

• Veðurspá og annað sem gæti breytt dagskránni með stuttum fyrirvara

• Hvernig þú sækir þér hjálp ef eitthvað kemur uppá og hafðu með þér neyðarbúnað

• Skipuleggðu hvaða mat þú tekur með þér og hvernig hann verður eldaður

• Skipuleggðu hvernig þú sækir þér hjálp ef eitthvað kemur uppá og hafðu með þér neyðarbúnað

• ígrundaðu hvernig þér leið á meðan dvölinni stóð, fyrir og eftir og hvort og hvernig það er frábrugðið því að vera í hópi 


Lýsing:


Að vera úti í náttúrunni, hvort sem er á skátamóti eða á göngu, getur verið ögrandi áskorun þegar kemur að skipulagningu, samvinnu og persónulegri ábyrgð. Einnig getur það verið ákaflega mismunandi eftir því á hvaða tíma ársins útiveran er, t.d. með tilliti til veðurs og hitastigs. Færnimerkið Vertu úti miðar að því að þú upplifir hvernig það er að takast á við náttúruna á eigin spýtur.