Sjálfbærni
Aldursbil :
Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Gagnrýnin hugsun, Lausnaleit, Náttúran, Heimurinn, Samfélagið, Eigin gildi

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Sjálfbærni“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Vita hver heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni eru
• Skilja hvað sjálfbærni þ!ðir fyrir þig
• Skipuleggja átak sem stuðlar að aukinni sjálfbærni og hrinda því í framkvæmd t.d. með því að minnka sorp í heilan mánuð, endurn!ja gamla hluti, vera virk í að dreifa jákvæðni á samfélagsmiðlum eða breyta því hvernig þú ferðast á milli staða
• Deila því sem þú gerðir með öðrum, t.d. á samfélagsmiðlum eða í dagblöðum
• Ígrunda hvernig til tókst og hvernig þú getur haldið áfram að láta gott af þér leiða í átt að sjálfbærni heimsins
Lýsing:
Sjálfbærni er að mæta þörfum í dag án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til þess að mæta þörfum sínum. Sjálfbærni liggur á þremur meginstoðum: samfélagi, efnahag og náttúru. Sjálfbærni er ekki verkefni sem lýkur heldur þurfum við að vera sívakandi og taka skýra afstöðu til þess að við viljum hafa áhrif til góðs. Öll ríki Sameinuðu þjóðanna hafa samþykkt 17 heimsmarkmið til sjálfbærni. Fyrir árið 2030 á að útrýma fátækt, minnka óréttlæti, stuðla að auknum friði og leysa loftslagsvána. Ef öll leggja sitt lóð á vogarskálarnar eru okkur allir vegir færir. Það er mikilvægt að öll séu meðvituð um hvað sjálfbærni er og hvernig þú og þitt nánasta getið lagt ykkar af mörkum. Á Skátavefnum má finna hugmyndir sem miða að því að tengja skemmtilegt skátastarf við heimsmarkmiðin: https://skatarnir.is/heimsmarkmid/








