Lýðræði
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Lausnaleit, Gagnrýnin hugsun, Eigin gildi

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Lýðræði þarftu að kunna skil á eftirfarandi:
• Ræða í sveitinni þinni um l!ðræði, hvernig raddir allra geta heyrst, hvernig best er að taka ákvarðanir o.s.frv.
• Vita hvernig skipulagi er háttað í skátafélaginu þínu, BÍS og WOSM/WAGGGS.
• Hafa tekið þátt í einhvers konar kosningu, t.d. í flokks/sveitarráðinu eða á aðalfundi skátafélagsins.
• Vita hvernig þú getur haft áhrif með því að skrifa ályktun eða tillögu til félagsstjórnar
• Halda fund með sveitinni þinni sem hefur fyrirfram ákveðna dagskrá, fundarstjóra og ritara.
• Hafa prófað með sveitinni/félagi ólíkar aðferðir til að komast að sameiginlegri niðurstöðu.
Lýsing:
Lýðræði snýst meðal annars um að skoðanir allra séu jafn mikils virði og að öll hafi sömu tækifæri til að hafa áhrif á sameiginlegar ákvarðanir. Til að lýðræði virki er mikilvægt að við höfum góðar og skýrar aðferðir til að ákveða hlutina í sameiningu. Hvernig er lýðræði háttað í þínum skátaflokki eða sveit?








