Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Skapandi hugur, Tilveran mín, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Áskoranir, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking

Laga

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Laga þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Búa til, laga eða breyta einhverju í: flokks- eða sveitarherberginu, skátaheimilinu, skátaskálanum eða nærumhverfinu.

• Fá hugmyndir að einhverju sem þig langar að gera áður en þú skipuleggur það.

• Útvega réttan efnivið.

• Fá leyfi frá sveitarforingja eða félagsforingja (eða öðrum viðeigandi aðila) áður en byrjað er á verkinu.

• Að verkefni loknu er mikilvægt að endurmeta hvernig til tókst.

Lýsing:


Mikilvægt er að læra að viðhalda hlutum, húsnæði og öðru. Þetta færnimerki er frábær hvatning til að betrumbæta nærumhverfið þitt, t.d. flokks- eða sveitarherbergið eða skátaheimilið. Þetta mun reyna á þig og flokkinn við raunverulegar aðstæður til að ná settu marki.