Tilheyra

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Gagnrýnin hugsun, Samfélagið, Eigin gildi

Tilheyra

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Tilheyra“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Eiga samtal við flokkinn/sveitina um þarfir allra, hvernig þið hugsið og framkvæmið og hvernig þið getið tryggt að öll geti látið ljós sitt skína, nýtt hæfileika sína og tekið virkan þátt

• Þú getir stigið til hliðar, leyft öðrum að komast að og klára að segja það sem þeim liggur á hjarta t.d. í samræðum eða við undirbúning viðburða

• Finna leiðir til að leyfa öðrum að kynnast þér og þínum þörfum betur svo að þín upplifun af skátastarfi verði sem best

• Veltu fyrir þér hvort það séu einhverjar óskrifaðar reglur eða venjur í skátastarfi sem gera öðrum erfiðara um vik að taka þátt

• Láttu til þín taka með því að kynna skátastarf á einfaldan hátt, til dæmis með veggspjaldi eða vefsíðu, þar sem lögð er áhersla á fjölbreytileika og að allir séu velkomnir óháð bakgrunni. Þú getur líka tekið þátt í herferð um málefni sem þér finnst skipta máli og s!nir að þér er annt um jafnrétti og þátttöku allra.

Lýsing:


Við viljum að öll börn og ungmenni fái að tilheyra og taka þátt í skátastarfi. Ekki eingöngu að vera með heldur vera virkir þátttakendur og hafa áhrif á sína eigin dagskrá. Ekkert barn ætti að vera skilið útundan bara vegna þess hver það er eða hvaðan það kemur. Við þurfum því öll að leggjast á eitt til að skapa andrúmsloft þar sem öllum líður vel! Við erum öll ólík og höfum ólíkar þarfir og venjur. Það sem virkar fyrir eitt, virkar ekki endilega fyrir annað. Sumir þurfa að hafa allar uppl!singar á hreinu áður en haldið er af stað, sumir þurfa að taka sér regluleg hlé frá leiknum og sumir gleyma sér endrum og eins. Það er því mikilvægt að taka tillit til þarfa hvers og eins og að saman séum við tilbúinn að gera breytingar eftir því sem við á hverju sinni.