Andleg heilsa
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Gagnrýnin hugsun, Samfélagið, Tilveran, Eigin gildi, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking, Líkaminn

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Andleg heilsa“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Skoðaðu Geðorðin 10 og ræðið einnig almennt um vellíðan
• Nefndu hluti sem þér líður vel með og hluti sem valda þér stressi eða kvíða.
• Skoðu hugmyndir þannig þú getir gert meira af því sem þér líður vel með og aðferðir til að takast á við það sem veldur þér stressi eða kvíða.
• Halda vellíðunar fund og n!ttu hugmyndir sem þið hafið fengið með því að kynna ykkur vellíðan eða ræða hana. Dæmi um slíkt gæti verið jóga, slökun eða núvitund.
• Skipuleggja og framkvæma góðverk fyrir aðra sem snýr að vellíðan.
Góð ráð:
https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/lidan/vellidan
https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/lidan/vellidan/gedordin-10/
Lýsing:
Andleg heilsa sn!st um hvernig okkur líður innra með okkur. Það sést ekki að utan á okkur hvernig við hugsum. Til að líða vel er mikilvægt að hugsa vel um líkamlega og andlega heilsu. Í þessu færnimerki leggur þú áherslu á andlega heilsu og einbeitir þér að því hvernig fólki líður innra með sér við mismunandi aðstæður. Ásamt því að skoða hvernig andleg heilsa tengist líkamlegum einkennum.








