Hellaskoðun
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Náttúran, Áskoranir, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Hellaskoðun“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Þekkir öryggisreglur áður en haldið er af stað að skoða helli
• Þekkir aðgengi að hellinum sem á að skoða
• Þekkir mikilvægi þess að vera aldrei eitt á ferð í hellaskoðun
• Þekkir hættuna á súrefnisskorti sem getur myndast í óloftræstum rýmum
• Að þú hefir lokið færnimerkinu Hjálpa og geta nýtt þá færni í aðstæðum með tilliti til meiðsla tengt hellaskoðun t.d. falls, tognun, brota, höfuðmeiðsla og súrefnisskorts.
• Skoðað þrjá eða fleiri hella
• Prófað mismunandi ljósgjafa í hellunum
• Hafir kynnt þér plöntur og dýr sem kunna að lifa í hellinum
• Kannað hvort það séu þjóðsögur eða ævint!ri tengd hellinum sem þú vilt skoða
• Hugsað hvernig fólk hafi nýtt sér hellinn sem þú ert að skoða. Var hann notaður til búsetu, til að geyma fé eða annað?
Lýsing:
Hellar hafa alltaf verið mönnum hugleiknir, hvort sem var til skjóls, sem h!b!li eða sem spennandi staðir til að kanna. Á Íslandi er hella að finna víðsvegar um landið, misstóra og erfiða yfirferðar og því ráðlegt að kanna aðstæður vel og miða við getu og færni hópsins hverju sinni








