Ramba
Aldursbil :
Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Hugurinn, Náttúran, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Ramba þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Þú þarft að vita hvað þú átt að gera ef þú skyldir villast og hvernig þú getur aukið líkurnar á því að þú finnist.
• Þú þarft að vita hvar þú átt heima og kunna símanúmer foreldra/forráðafólks.
• Hafa upplifað að vera ein/einn/eitt í náttúrunni í skamma stund.
Lýsing:
Sem skáti þarftu að bera ábyrgð og takast á við ólíkar áskoranir. Því er mikilvægt að þér líði vel á ókunnum slóðum og vitir hvert á að halda ef þú villist.








