Sjónlist

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Hugurinn, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Áskoranir, Eigin gildi

Sjónlist

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Sjónlist þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Taktu þátt í að búa til stuttmynd (t.d. eitt eða allt eftirfarandi)

• Skrifa handrit, finna tökustaði og leikmuni, æfa, leika, taka upp og klippa

• Stuttmyndin þarf að vera fimm mínútur að lengd og tekin upp á mismunandi stöðum.

• Sýnið hinum flokkunum eða sveitinni afraksturinn

• Endurmetið hvernig til tókst

Lýsing:


Að taka upp kvikmynd er skemmtilegt og fjölbreytt verkefni. Hér færðu meðal annars tækifæri til að prófa að vera leikari, læra allt um tæknina á bak við kvikmyndagerð, vera skapandi og/eða láta reyna á hæfileika þína sem leikstjóri. Ef afraksturinn er góður er hægt að senda myndina inn í stuttmyndasamkeppni. Kannski er þetta upphafið að farsælum ferli í kvikmyndabransanum!