Kokkur

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Gagnrýnin hugsun, Líkaminn

Kokkur

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Kokkur þarftu að hafa lokið færnimerkinu Aðstoðarkokkur og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Geta skipulagt matseðil fyrir helgarútilegu.

• Geta fylgt uppskriftum og eldað mat með fjölbreyttum hráefnum, bæði innan- og utandyra, t.d. yfir opnum eldi.

• Þekkja hvað hefur áhrif á geymsluþol hráefna og hvernig er best að geyma hráefni svo þau endist sem lengst.

Lýsing:


Kokkur er framhald af færnimerkinu Aðstoðarkokkur. Hér færðu að taka þátt í skipulagningu fyrir matargerð og að elda flóknari rétti á mismunandi vegu.