Loftslag

Aldursbil :

Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Gagnrýnin hugsun, Lausnaleit, Náttúran, Heimurinn, Samfélagið, Eigin gildi

Loftslag

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Loftslag“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Reikna út kolefnisfótspor þitt

• Draga úr kolefnisfótspori þínu í heilan mánuð t.d. með því að hjóla í stað þess að n!ta ökutæki, gerast grænkeri eða grænmetisæta og kaupa notað frekar en nýtt

• Leiða átak í skátafélaginu eða sveitinni þinni sem hefur það að markmiði að minnka útblástur, t.d. með fjáröflun fyrir sólarsellum á skátaskálann, skipuleggja og st!ra fjallgöngu þar sem allt nestið er vegan, bæta flokkun úrgangs og kynna leiðir til að draga úr matarsóun í útilegum og skátamótum

Lýsing:


Þátttaka ungs fólks í baráttunni gegn loftslagsvánni er alheimsafl sem hefur áhrif á ríkisstjórnir, stórfyrirtæki og annað fólk í valdastöðum um heim allan. Taktu þátt í baráttunni! Lífstíll okkar hefur áhrif á jörðina en lofthjúpur hennar hl!nar með hverju árinu. Koltvís!ringur og aðrar gróðurhúsalofttegundir safnast fyrir í lofthjúpnum og valda hnattrænni hl!nun með tilheyrandi náttúruhamförum, bráðnun jökla, hækkandi sjávaryfirborði, ofsaveðrum og þurrkum. Það hefur óhjákvæmilega mikil áhrif á líf okkar í nútíð og framtíð og við verðum að bregðast við til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Í sameiningu getum við komið með n!jar og ferskar hugmyndir til að hægja á þessari neikvæðu þróun