Stjörnubjart

Aldursbil :

Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Heimurinn og umhverfið, Skapandi hugur, Tilveran mín, Náttúran, Gagnrýnin hugsun, Áskoranir

Stjörnubjart

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Stjörnubjart“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Geta þekkt 3 ólík stjörnumerki og sagt frá þeim stjarnfræðilegu fyrirbærum sem mynda þau ásamt tilkomu nafnsins eða tengingu stjörnumerkisins við það.

• Þekkja tunglmánuðinn, kvartilaskipti á tunglinu og hvenær það vex og dvín.

• Þekkja flóðkrafta tunglsins og skilja hví tvö flóð verða á hverjum sólarhring.

• Þekkja muninn á stjörnum, stjörnuþokum, plánetum, loftsteinum, gervitunglum, flugvélum og norðurljósum.

• Þekkja gang jarðar um sólu og hvaða áhrif hann hefur á árstíðaskipti og lengd daga.

• Geta staðsett Pólstjörnuna á himni og þekkja gagnsemi og takmarkanir hennar til rötunnar.

Lýsing:


Sem skátar verjum við miklum tíma undir berum himni. Þá er ekki óalgengt að fólk horfi til himins og virði fyrir sér stjörnurnar. Í margar aldir hefur mannkynið velt stjörnunum fyrir sér og slegið fram alls kyns misgáfulegum kenningum um þær. Með færnimerkinu Stjörnubjart munt þú kanna himinhvolfið og þekkja helstu fyrirbæri sem þar eru að finna; stjörnumerki, sólkerfi, plánetur og aðra gesti sem eiga leið um himinhvolfið.