Aðstoðarkokkur
Aldursbil :
Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Tilveran mín, Gagnrýnin hugsun, Líkaminn

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Aðstoðarkokkur þarftu að þekkja til og geta s!nt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Þekkja mikilvægi hreinlætis þegar kemur að matargerð.
• Taka þátt í að búa til mat, bæði innan- og utandyra, t.d. með prímus.
• Geta með aðstoð foringja fylgt einfaldri uppskrift og taka virkan þátt í matargerðinni, frá upphafi til enda, þar til rétturinn er tilbúinn.
Lýsing:
Matur er ekki bara öllum nauðsynlegur, að taka þátt í að búa hann til er líka afar spennandi og skemmtilegt verkefni. Hér færðu tækifæri til að læra hvernig á að elda einfaldan mat og að gera það sjálf/sjálfur/sjálft.








