Könnuðamerkin

Hvatamerki fyrir elsta aldursbil allra skátasveita

Könnuðamerkin eru hluti af hvatakerfi sem er notað til að hjálpa skátunum að fá hugmyndir að verkefnum, að setja mér markmið og sjá árangur af starfinu. Skátar sem eru að ljúka aldursbili fá tækifæri á að vera könnuðir.

Sem könnuðir þurfa þau að vinna að sérstökum verkefnum á síðasta árinu sínu. Rekkaskátar vinna að forsetamerkinu í 2-3 ár.

Könnuðamerkjabækurnar

Til þess að fá könnuðamerkið þurfa skátarnir að vinna að allskyns fjölbreyttum verkefnum eins og skylduverkefni, valverkefni og sérverkefni. Leiðangur skátanna er tekinn saman í könnuðamerkjabókinni, skátarnir skrifa niður verkefnin sem þau klára og fá undirskrift skátaforingja til samþykktar.