Alþjóðaskátun: kynnast
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Heimurinn og umhverfið, Heimurinn, Samfélagið

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Alþjóðaskátun: kynnast“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Skipuleggja ferð þar sem þið heimsækið skáta frá öðru landi.
• Gerið eitthvað með vinaflokknum sem er dæmigert að gera í íslensku skátastarfi.
• Endurmetið heimsóknina. Er skátastarfið hjá vinaflokknum ólíkt því sem þið eigið að venjast? Hvernig?
• Segið öðrum skátum í skátafélaginu ykkar frá heimsókninni.
Lýsing:
Skátahreyfingin er alþjóðleg hreyfing og það eru skátar í yfir 160 löndum. Mikilvægur þáttur í skátastarfi er að kynnast skátum frá öðrum löndum, þannig stuðlum við að friði í heiminum. Með því að heimsækja skátafélög í öðrum löndum öðlast maður betri skilning á skátahreyfingunni allri.








