Traustur félagi
Aldursbil :
Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Gagnrýnin hugsun, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Traustur félagi“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Ræða í flokknum/sveitinni hvað felst í því að vera góður vinur og traustur félagi.
• Tala um aðstæður sem geta verið erfiðar í vinskap og hvernig hægt er að bregðast við þeim.
• Gera áætlun hvernig flokkurinn/sveitin getur tekið á móti n!jum skátum og boðið þau velkomin
• Kunna að gera vinahnút
• Vita hvert á að leita ef einhver kemur illa fram við þig eða aðra
• Sýndu vinskap í verki t.d. með að bjóða einhverjum á fund, setjast hjá þeim sem er einmanna eða senda hvetjandi skilaboð.
Lýsing:
Í skátunum eignast maður vini fyrir lífstíð. Það að vera skáti er að vera góður félagi og vinur. En hvað þýðir að vera góður vinur? Svarið er ekki endilega alltaf augljóst, stundum kemur það sjálfkrafa en stundum þarf umhugsun, ígrundun og æfingu.








