Ofurflokkurinn
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Leiðtogafærni, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking, Eigin gildi

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Ofurflokkurinn“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Ræðið hvað flokkur/sveit er, hvaða eiginleikar eru mikilvægir til að vera virkur þátttakandi í hóp
• Skoðið og kynnið ykkur flokkakerfið innan skátahreyfingarinnar
• Skoðaðu styrkleika og veikleika þína. ræðið innan flokksins
• Prófið að gera 3 mismunandi verkefni sem flokkur t.d. leysa dulmál, koma með uppfinningu eða taka að sér að skipuleggja viðfangsefni. Ræðið hvar styrkleikar flokksins eru
• Prófaðu nýtt hlutverk innan flokksins og sjáðu hvað breytist
Lýsing:
Í skátunum vinnum við oft í hópum eða flokkum. Til að flokkurinn vinnu sem best er mikilvægt að þekkja sína styrkleika og veikleika, ásamt því að þekkja styrkleika og veikleika hinni sem eru með þér í flokknum. Einnig þarf hópurinn í heild sinni að skoða hvaða styrkleika hann hefur og hvaða færni gæti flokkurinn þurft að bæta til að verða öflugri flokkur.







