Skátaþing 2026
20.-22. mars | Akureyri
Stefnan tekin
Skátaþing 2026 fer fram helgina 20.-22. mars á Akureyri
Mikilvægar dagsetningar fram að skátaþingi
Rétt er að vekja athygli á eftirfarandi dagsetningum fram að þingi samkvæmt gildandi lögum BÍS.
6. febrúar kl. 20:30 - Fresti til að boða til Skátaþings lýkur.
20. febrúar kl. 20:30 – Fresti til að skila tillögum að lagabreytingum til stjórnar BÍS lýkur.
27. febrúar kl. 12:00 – Framboðsfrestur í laus embætti BÍS rennur út.
27. febrúar kl. 20:30 – Fresti til að skila beiðnum um upptöku mála á Skátaþingi til stjórnar BÍS lýkur.
6. mars kl. 20:30 – Fresti stjórnar BÍS til að senda félagsforingjum þinggögn og drög að dagskrá Skátaþings lýkur.
13. mars kl. 20:30 – Fresti til að skila athugasemdum um útsend gögn til Skátamiðstöðvarinnar lýkur.
13. mars kl. 20:30 – Skráning á Skátaþing lýkur.
20. mars kl. 20:30 – Fresti skátafélaga til að skila gögnum og kjörbréfum til Skátamiðstöðvarinnar lýkur.
20. mars kl. 20:30 – Skátaþing er sett.
Skráning þingfulltrúa
Allir starfandi skátar hafa rétt til að sitja Skátaþing með málfrelsi og tillögurétt óháð aðildarleið. Skátar 13 ára og eldri geta farið með 1 atkvæði félags sem þau eru skráð í. Skátafélög eru hvött til að vekja athygli sinna skáta á þinginu. Öll sem hyggjast taka þátt skulu skv. 18. grein laga BÍS skrá sig á skraning.skatarnir.is fyrir 13. mars klukkan 20:30. Félagsforingjar eða annað stjórnarfólk skátafélaganna skal skila kjörbréfum rafrænt þar sem tilgreindir eru aðal- og varafulltrúar skátafélags á þinginu.
Skil kjörbréfa
Félagsforingi eða annað stjórnarfólk skal fylla út rafrænt kjörbréf áður en Skátaþing er sett.
Þinggögn
Hér birtast þinggögn jafnóðum og þau berast
Fundarboð
Tilkynning frá uppstillingarnefnd
Gildandi lög, reglugerðir og stefnur BÍS:
Embætti laus til kjörs á Skátaþingi 2026:
STJÓRN
Skátahöfðingi
Þrír meðstjórnendur
FASTARÁÐ
Þrjú til fimm sæti í alþjóðaráði
Þrjú til fimm sæti í starfsráði
Þrjú til fimm sæti í stjórn Skátaskólans
Þrjú til fimm sæti í Útilífsráði
KJÖRIN Á UNGMENNAÞINGI
Áheyrnafulltrúi ungmenna í stjórn BÍS
Fimm sæti í ungmennaráði
ANNAÐ
Fimm sæti í uppstillingarnefnd
Þrír félagslegir skoðunarmenn reikninga
Löggiltur endurskoðandi
FRAMBOÐSTILKYNNINGAR
Framboðstilkynningar og tillögur um fólk í þessi embætti óskast sendar uppstillingarnefnd hið fyrsta og eigi síðar en 27. febrúar kl. 12:00.
Tilkynningar um framboð þurfa að berast í tölvupósti á netfang uppstillingarnefndar. Sérstök athygli er vakin á því að ekki er hægt að skila framboðum á þinginu sjálfu
UPPSTILLINGARNEFND SKIPA:
| Dagbjört Brynjarsdóttir, formaður | 862-4605 | dagga@mosverjar.is | Skátafélagið Mosverjar |
| Ásgeir Ólafsson | 844-4069 | asgeir@hraunbuar.is | Skátafélagið Hraunbúar |
| Hafdís Bára Kristmundsdóttir | 617-1591 | barahafdis@gmail.com | Skátafélagið Vífill |
| Ingimar Eydal | 862-2173 | ingimar.eydal@simnet.is | Skátafélagið Klakkur |
Kynningar frambjóðenda
New Paragraph
New Paragraph
Afgreitt á ungmennaþingi 2026
New Paragraph
Dagskrá
Tillögur til afgreiðslu á skátaþingi
New Paragraph
Fundargerð Skátaþings 2026
Samkvæmt 21.gr laga BÍS skulu fundarstjórar auk allsherjarnefndar yfirfara og undirrita fundargerð frá fundarriturunum.


